Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
ÖSKUDAGURINN !!! Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 17 febrúar 2010 13:28

                         Í dag héldum við upp á ÖSKUDAGINN !!!

 
Það var mikið fjör og húllumhæ hjá okkur ávöxtunum úr ávaxtakörfunni  
Við fórum í flottu búningana okkar og sumir vildu láta mála sig í framan. Þá hittumst við öll inni á Grenihlíð.
Nokkur börn á Reynihlíð léku fyrir okkur leikrit og svo var kötturinn sleginn úr tunnunni, Síðan dönsuðum við saman og borðuðum snakk.
 
Það eru komnar myndir af okkur á öskudagsskemmtun í myndaalbúmið
"sameiginlegt -> öskudagur"
 
Bolludagur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 16 febrúar 2010 08:45

Þær voru góðar, rjómabollurnar 

 
Öskudagurinn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
sunnudagur, 07 febrúar 2010 22:11

Kæru foreldrar á Hamraborg
Það hefur skapast sá siður hér í Hamraborg að vinna með ákveðið þema fyrir öskudaginn.
Þá skoðum við vel einhverja ákveðna sögu, ævinýri, tónverk eða annað og vinnum með það í einhvern tíma fyrir öskudaginn. Síðan útbúa börnin búninga sem tengjast viðfangsefninu og eru í þeim á öskudagsskemmtun.
 
Öskudagsþema leikskólans í ár verður Á v a x t a k a r f a n

Um Ávaxtakörfuna: Þetta er líflegur og skemmtilegur söngleikur sem fjallar um einelti,  ójafnrétti, vináttu og  lýðræði. Sagan  fjallar um Mæju litlu jarðarber sem býr við illan kost í Ávaxtakörfunni og þarf að þjóna hinum ávöxtunum. Immi ananas hefur ákveðið að krýna sjálfan sig konung yfir Ávaxtakörfunni og ávaxtaríkinu öllu en það finnst Mæju jarðarberi ekki sanngjarnt.
Daginn sem krýningarhátíðin á að fara fram kemur grænmeti í Ávaxtakörfuna, nánar tiltekið Gedda gulrót. Við þetta lagast staða Mæju, sem fær að vera „ein af ávöxtunum“ en Gedda gulrót tekur við stöðu þjónustustúlkunnar.
Gedda er ekki jafn hrædd við ávextina og Mæja jarðarber og ákveður að ræða málin við Mæju. Henni tekst að sannfæra Mæju um að jafnrétti og bræðralag sé betra en einelti og fordómar. Saman sannfæra þær svo hina ávextina um að vináttan sé mikilvægust og halda að lokum sameiningarhátíð í stað krýningarveislu Imma ananasar. Að lokum eru allir í Ávaxtakörfunni vinir sem virða hvern annan.

 
 
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 8 af 36

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Hamraborg | Grænuhlíð 24 | 105 Reykjavík | s: 553 6905 | Póstur | Viðburðir | Fréttir