Foreldrafundurinn í morgun gekk mjög vel og það var góð mæting!
Ætla að setja inn nokkra punkta sem ræddir voru í morgun:
Praktísk atriði:
- Kveðja börnin í dyrunum, klæða í inniskóna, ekki fara án þess að kveðja og heilsa okkur ;)
- Ekki koma of seint út af hópastarfi sem hefst um kl. 9.15.
- Hafa alltaf aukaföt í töskunni
- Tæma hólfin alveg um helgar og þrífa galla
- Láta vita ef annar sækir barnið
- Stuttar kveðjustundir
- Koma ekki með börnin milli kl. 11-13 því að þá er hádegismatur og hvíld.
- Segja frá ef einhverjar breytingar verða hjá barninu (t.d. ef það skiptir um herbergi eða eitthvað svoleiðis) Viljum vita af öllu...þó það virðist smávægilegt þá getur það haft áhrif á hegðun barnsins og líðan í leikskólanum.
- Ekki koma með dót í skólann nema bækur og geisladiska og geyma þá í hólfinu. Annað gildir um þá sem eru að byrja í leikskólanum eða eru að hætta með snuddu
- HLIÐIÐ! LOKA ALLTAF!
- Merkja ALLT.
Kv, Arnbjörg



